Mikil áhrif álvers í Helguvík á atvinnulíf og sveitarfélög á Reykjanesi (1)
Norðurál áformar að reisa álver á iðnaðarsvæðinu við Helguvík á Reykjanesi. Áhrif þess á atvinnulíf, vinnumarkað, atvinnutekjur, íbúafjölda og tekjur sveitafélaganna á Suðurnesjum verða umtalsverð. Áhrifin verða mest á svæðinu næst Helguvík en þeirra mun þó gæta allt til höfuðborgarsvæðisins þar sem gert er ráð fyrir nokkurri atvinnusókn þaðan.
Langur framkvæmdatími - lítil hætta á
ofþenslu
Áformað er að byggja álverið í áföngum og er stefnt að því að ná
allt að 250.000 tonna ársframleiðslu árið 2015. Áætlað er að hefja
undirbúningsframkvæmdir fyrir árslok 2007 og gangsetja fyrsta
áfanga árið 2010, en áfangaskipting fer eftir því hvernig til tekst
með orkuöflun. Gert er ráð fyrir því að bygging álversins krefjist
1.800 ársverka, eða sem nemur 300 ársverkum á ári að jafnaði á 6-8
ára framkvæmdatíma. Þessi langi framkvæmdartími mun draga úr
hættu á því að framkvæmdirnar stuðli að ofþenslu á byggingamarkaði.
Búast má við að stór hluti starfsmanna muni koma frá Suðurnesjum,
bæði á meðan byggingaframkvæmdum stendur og á rekstrartíma.
Áætlað er að skiptingin verði þannig að 65% starfsmanna komi frá
Reykjanesbæ, 20% frá öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjum og 15% frá
höfuðborgarsvæðinu.
Varanleg fjölgun um 1.200 störf - beint og
óbeint
Þegar álverið verður komið í fulla stærð árið 2015 munu þar starfa
400 starfsmenn og má varlega áætla að auk þeirra myndist
a.m.k. tvö afleidd störf utan álversins á móti hverjum starfsmanni
í álverinu. Afleidd störf eru því hér áætluð 800 á ársgrundvelli og
heildarfjöldi nýrra starfa 1.200 vegna tilkomu álversins. Í
eftirfarandi umfjöllun er gengið út frá þeirri forsendu að bein og
óbein áhrif álversins á verðmætasköpun verði hrein viðbót við þá
starfsemi sem fyrir er á svæðinu, en ryðji ekki burt neinu sem
fyrir er. Þá er ekki gert ráð fyrir að á svæðinu sé völ á annarri
sambærilegri fjárfestingu sem kæmi í stað álversins. Ef um
slíka fjárfestingakosti verður að ræða munu þeir hæglega geta orðið
að veruleika samhliða uppbyggingu álversins.
Áætlað er að búsetuskipting þeirra starfsmanna sem fylla muni þessi 1.200 störf verði þannig að 780 verði búsettir í Reykjanesbæ, 240 í öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjum og 180 á höfuðborgarsvæðinu. Þótt hér sé miðað við ákveðna skiptingu milli sveitarfélaga þá getur hún hæglega orðið önnur og ber því fyrst og fremst að skoða sem vísbendingu um hver þróunin getur orðið.
| Skipting starfa vegna reksturs álvers í Helguvík eftir sveitarfélögum | |||
|
Álversstörf |
Afleidd störf |
Alls |
|
| Reykjanesbær |
260 |
520 |
780 |
| Önnur sveitarfélög á Suðurnesjum |
80 |
160 |
240 |
| Höfuðborgarsvæðið |
60 |
120 |
180 |
| Alls |
400 |
800 |
1.200 |
Álver í Helguvík mun stuðla að íbúafjölgun á Suðurnesjum. Forsendur fyrir fjölgun íbúa eru þær að fyrir hvert 1 nýtt starf sem skapast vegna álversins fjölgi íbúum um 2 og er þá tekið mið af fyrri rannsóknum sem hafa verið gerðar hér á landi . Samkvæmt því er áætlað að íbúum fjölgi um 2.400 og miðað við núverandi íbúafjölda nemur aukningin 13% í Reykjanesbæ en 11% á Reykjanesinu öllu.
| Áætluð íbúafjölgun af völdum fyrirhugaðs
álvers í Helguvík
|
|
|
Íbúafjölgun |
|
|
Reykjanesbær |
1.560 |
|
Önnur sveitarfélög á Suðurnesjum |
480 |
|
Höfuðborgarsvæðið |
360 |
| Alls |
2.400 |
Starfsemi álvers á Suðurnesjum sem og annars staðar hefur þá kosti að störf í álveri eru langtímastörf sem eru óháð sveiflum á innlendum markaði. Þá greiða álver hærri laun en að jafnaði í landinu og því eru störfin eftirsótt hvort sem litið er til starfsgreina sem krefjast lítillar formlegrar menntunar, fagærðra eða háskólagenginna. Þetta mun stuðla að því að ungir Suðurnesjabúar, sem annars hefðu flust af svæðinu að aflokinni menntun t.d. í háskólum í Reykjavík eða erlendis, muni eiga þess kost að búa áfram í sinni heimabyggð.
Auknar tekjur sveitarfélaga
Sveitarfélögin í nágrenni álversins munu fá auknar
skatttekjur vegna fjölgunar íbúa og þar með hærra útsvar,
fasteignagjöld auk hafnargjalda. Meðaltekjur allra starfsgreina í
álverinu eru áætlaðar um 390.000 kr. á mánuði á grundvelli
launakönnunar Hagstofu Íslands og framreiknings til
kaupgjalds á árinu 2007 með launavísitölu. Meðaltekjur í afleiddum
störfum eru áætlaðar fjórðungi lægri en í álverinu.
Heildarlaunagreiðslur álvers í Helguvík, án launatengdra gjalda,
munu samkvæmt því verða um 1,9 milljarður króna á ári og 2,8
milljarðar króna í afleiddum störfum. Auknar launagreiðslur sem
leiða munu af starfrækslu álversins munu því samtals nema 4,7
milljörðum króna á ári. Útsvarstekjur sveitarfélaga vegna þessara
launatekna munu aukast um 580 m.kr. á ári og skiptast þannig að
hlutur Reykjanesbæjar verður 370 m.kr., hlutur annarra
sveitarfélaga á Suðurnesjum 120 m.kr. og 90 m.kr. falla í hlut
sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
| Útsvarstekjur vegna beinna og afleiddra starfa í tengslum við fyrirhugað álver í Helguvík. Milljónir króna | ||
|
Launagreiðslur |
Útsvarstekjur |
|
|
Reykjanesbær |
3.100 |
370 |
|
Önnur sveitarfélög á Suðurnesjum |
900 |
120 |
|
Höfuðborgarsvæðið |
700 |
90 |
| Samtals |
4.700 |
580 |
Fasteignagjöld, hafnar- og skipagjöld
Um fasteignagjöld vegna álvers er samið sérstaklega en ætla má að
þau verði svipuð og gildir um álverið á Grundatanga, eða um 100
milljónir króna á ári fyrir 250.000 tonna álver og skiptist jafnt á
milli Reykjanesbæjar annars vegar og hinna sveitarfélaganna á
Suðurnesjum hins vegar. Einnig greiðast hafnar- og skipagjöld en
þau eru áætluð rúmlega 150 milljónir á ári, án þess að vitneskja
liggi fyrir þar að lútandi.
Fólksfjölgun í tengslum við aukið framboð starfa vegna starfsemi álversins mun verða mætt með auknu framboði íbúðarhúsnæðis sem ætla má að nemi 1.200 íbúðum á áhrifasvæðinu öllu. Við áætlun fasteignagjalda af þessum íbúðafjölda var stuðst við upplýsingar Fasteignamats ríkisins. Samkvæmt framangreindum forsendum munu fasteignagjöld í tengslum við íbúafjölgun af völdum álversins aukast um 51 m.kr. árlega í Reykjanesbæ, 16 m.kr. í öðrum sveitarfélögum á Suðurnesjum og um 14 m.kr. á höfuðborgarsvæðinu.
| Auknar tekjur af fasteignagjöldum vegna
íbúafjölgunar í tengslum við fyrirhugað álver í Helguvík
|
|||
|
Fjöldi íbúða |
Skattur á íbúð, þús. kr. |
Fasteignagjöld alls, m. kr. |
|
|
Reykjanesbær |
780 |
66 |
51 |
|
Suðurnes |
240 |
66 |
16 |
|
Höfuðborgarsvæðið |
180 |
80 |
14 |
| Alls |
1.200 |
212 |
82 |
Tekjuaukning sveitarfélaganna í heild
Ætla má að starfræksla 250 þús. tonna álvers í Helguvík
leiði til fjölgunar starfa, beint og óbeint, um a.m.k. 1.200,
hækkunar atvinnutekna um rúma þrjá milljarða króna og fjölgunar
íbúða á Suðurnesjum um 1.200. Skatttekjur Reykjanesbæjar munu verða
rúmlega 600 m.kr. hærri en ella, á verðlagi í maí 2007, frá árinu
2015 ef áform um álver í Helguvík ná fram að ganga. Til samanburðar
voru skatttekjur Reykjanesbæjar 3,1 milljarður króna í
fjárhagsáætlun fyrir 2006 og sem fimmtungs aukning skatttekna af
völdum álversins, þ.e. 20%. Skatttekjur annarra sveitarfélaga á
Suðurnesjum munu væntanlega aukast um tæplega 200 m.kr. en
skatttekjur þeirra árið 2006 námu samtals um 1,9 milljarði króna,
þannig að aukning skatttekna þeirra af völdum álversins verður 10%.
Loks munu skatttekjur sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu aukast um
rúmlega 100 m.kr.
| Skattekjur sveitarfélaga vegna beinna og
afleiddra starfa í tengslum við fyrirhugað álver í Helguvík.
Milljónir króna
|
||||
|
Reykjanes- bær |
Önnur sv.fél. á Suðurnesjum |
Sveitarfélög á höfuðb.svæði |
Samtals |
|
|
Útsvarstekjur |
370 |
120 |
90 |
580 |
|
Fasteignagjöld af íbúðum |
50 |
15 |
15 |
80 |
|
Fasteignagjöld af álveri |
50 |
50 |
100 |
|
|
Hafnar- og skipagjöld |
150 |
150 |
||
| Samtals |
620 |
185 |
105 |
910 |
Áhrifin á skatttekjur ríkissjóðs verða einnig umtalsverð. Ætla má að tekjuskattur til ríkisins vegna aukinna launatekna muni nema um einum milljarði króna árlega, tekjur af tryggingagjaldi aukist um 270 m.kr. og tekjuskattgreiðslur fyrirtækisins gætu numið 1-2 milljörðum króna árlega.