Mikið fé bundið í Seðlabankanum
Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að 200 milljarðar króna af innlánum viðskiptabanka og sparisjóða séu úr umferð meðan þær fjárhæðir liggi í Seðlabankanum. Atvinnulífið í landinu sé svelt um tugi milljarða vegna þessa. Þetta kom fram í hádegisfréttum RÚV.
Í umfjöllun RÚV segir að vel yfir 200 milljarðar króna af fé
almennings og fyrirtækja liggi í Seðlabankanum vegna þeirra háu
vaxta sem Seðlabankinn veitir. Viðskiptabankarnir sjái fáa kosti
til að ávaxta innistæður sínar og hafi því brugðið á það ráð
síðustu misserin, að ávaxta innlánin sem almenningur geymir á
reikningum sem bera lága vexti, í Seðlabankanum, þar sem veittir
eru hærri vexti. Hagnaður viðskiptabanka og sparisjóða á síðasta
ári sé að miklum hluta til kominn með þessum hætti.
Viljhjálmur Egilsson segir að lítil og meðalstór íslensk
fyrirtæki hafi engan veginn bolmagn til þess að fá lán hjá bönkunum
til framkvæmda. Fyrir hrun hafi þau hins vegar haft greiðan aðgang
að innlendu og erlendu lánsfé á hagstæðum kjörum. "Nú er það lokað
og þá er atvinnulífið ekki að fjárfesta vegna þess að
fjármagnskostnaðurinn er hár." Vilhjálmur segir að þetta þurfi að
laga þannig að einhver fari að þora að gera eitthvað, en allt sé
stopp vegna hinna háu vaxta.
Vilhjálmur segir engan annan kost í dag fyrir bankana en að leggja pening inn í Seðlabankann, þeir hagnist á því, en hann telji þó að bankarnir vilji heldur vera í þeirri aðstöðu að lána viðskiptavinum sínum peninga. Við eðlilegar aðstæður eigi lítil og meðalstór fyrirtæki að geta fjárfest í atvinnulífinu fyrir tugi milljarða króna á hverju ári.