Mest aukning kaupmáttar á Íslandi
Á tímabilinu 1995-2003 jókst kaupmáttur launa á almennum
vinnumarkaði meira á Íslandi en í þeim ríkjum sem við berum okkur
yfirleitt saman við. Þetta kemur fram í gögnum OECD,
Efnahags- og framfarastofnunar Evrópu. Kaupmáttur launa jókst um
rúm 27% á Íslandi á tímabilinu samanborið við tæp 12% í
OECD-ríkjunum að meðaltali. Kaupmáttaraukning á almennum
vinnumarkaði á Íslandi var þannig meira en tvöföld á við það sem
gerðist að jafnaði í OECD-ríkunum. Á þessu tímabili stóð
kaupmáttur nánast í stað á evrusvæðinu, þ.e. í þeim tólf ríkjum sem
tekið hafa upp evruna. Þar vegur þyngst að í stærsta ríkinu,
Þýskalandi, jókst kaupmátturinn aðeins um 1% á þessu átta ára
tímabili.
(Smellið á myndina)
Fast á hæla Íslendinga koma Grikkir og Svíar með rúmlega 25% kaupmáttaraukningu á þessu tímabili. Grikkir náðu þessum árangri með svipuðum launa- og verðlagshækkunum og Íslendingar, þar sem launin í báðum löndunum hækkuðu um 67%, en verðlag um 31% á Íslandi, en um 33% í Grikklandi á umræddu tímabili. Svíar náðu þessum árangri hins vegar með mun minni launa- og verðlagshækkunum þar sem launin hækkuðu um 39% en verðlag aðeins um 11,5%.
Kaflaskipt vegna verðbólguþróunar
Þróunin á þessu átta ára tímabili var nokkuð kaflaskipt,
eins og fram kemur á meðfylgjandi súluriti. Fyrstu árin, þ.e.
1995-1998, jókst kaupmátturinn mikið af völdum tiltölulega
mikilla launahækkana en lítillar verðbólgu. Síðan tók við tímabil
hægt vaxandi kaupmáttar á árunum 1999-2001. Á því tímabili voru
launahækkanir svipaðar og á fyrra tímabilinu en verðbólgan jókst
verulega samfara mikilli þenslu í efnahagslífinu. Síðasta
tímabilið, sem nær til síðasta og þessa árs, einkennist enn af
miklum launahækkunum en verðbólgan hefur hjaðnað á ný,
einkum vegna styrkingar krónunnar.
(Smellið á myndina)
Að baki þessari miklu kaupmáttaraukningu á Íslandi stendur kraftmikill hagvöxtur síðustu árin, að því síðasta frátöldu. Samkvæmt nýjustu áætlunum, sem gera ráð fyrir 2% hagvexti í ár, hefur hagvöxturinn numið 36,5% frá árinu 1995 og um 24,6% á hvern íbúa þar sem fólksfjölgunin er u.þ.b. 7,5% á tímabilinu.
Meiri hækkanir í raun, einkum
hjá hinu opinbera
Í raun hafa launahækkanir á Íslandi verið mun meiri en hér kemur
fram. Þar kemur einkum tvennt til. Í fyrsta lagi hafa laun
opinberra starfsmanna hækkað um hvorki meira né minna en 90% á
tímabilinu 1995-2003, ef marka má launavísitölu Hagstofunnar og sé
gert ráð fyrir 5% hækkun á þessu ári. Það felur í sér 45%
kaupmáttaraukningu á tímabilinu. Þá hafa sjómannalaun hækkað mikið,
einkum allra síðustu ár, vegna mikillar hækkunar fiskverðs
innanlands en einnig afurðaverðs erlendis. Loks bendir margt til
þess að opinber gögn um launaþróun hafi vanmetið hækkun launa á
almennum vinnumarkaði á árunum 1998-2000, en líkt og tölur
Kjararannsóknarnefndar eru tölur OECD fyrir almennan vinnumarkað
ívið hærri en tölur Hagstofu Íslands.
Hlutur launa hærri en fær
staðist til lengdar
Eðlilega ríkir mikil ánægja með þessa þróun kaupmáttar í
samfélaginu. Hún hefur þó að öllum líkindum gengið of langt með
þeim afleiðingum að hlutur launa í verðmætasköpuninni er orðinn
hærri en fær staðist til lengdar. Í því ljósi eru þau fyrirtæki,
sem búa við alþjóðlega samkeppni, fjarri því að vera í stakk búin
til að standa undir þeirri hækkun á gengi krónunnar sem átt hefur
sér stað undangengna mánuði. Því mun of hátt gengi og of mikill
kaupmáttur raska nýfengnu jafnvægi í utanríkisviðskiptum
þjóðarinnar og viðskiptahalli taka að vaxa á ný.
______________
1) OECD Economic Outlook nr. 72,
desember 2002. Tölur ársins 2002 eru áætlanir og 2003 spár. Rétt er
að taka það fram að tölur OECD eru heldur hærri en launavísitala
Hagstofu Íslands fyrir almennan vinnumarkað, sem gild rök eru fyrir
sbr. tölur Kjararannsóknarnefndar. Til einföldunar er fjallað um
tímabilið eins og það sé liðið þótt árið 2003 sé nýhafið og byggt
sé á spám um þróun launa og verðlags á árinu. Þá er rétt að halda
því til haga að kaupmáttur jókst meira í tveimur nýjum
aðildarríkjum OECD, Póllandi og Ungverjalandi, en á Íslandi, en í
samanburði OECD eru þau undanskilin sem "háverðbólgulönd."

