Menntaverðlaun atvinnulífsins 2018 - óskað eftir tilnefningum
Menntaverðlaun atvinnulífsins verða afhent í Hörpu fimmtudaginn 15. febrúar 2018. Óskað er eftir tilnefningum um fyrirtæki sem hafa staðið sig vel á sviði fræðslu- og menntamála. Tilnefningar sendist í tölvupósti til Samtaka atvinnulífsins á sa@sa.is, eigi síðar en mánudaginn 18. desember.
Verðlaun eru sem fyrr veitt í tveimur flokkum, menntafyrirtæki og menntasproti ársins 2018, en fyrirtæki sem tilnefnd eru verða að uppfylla ákveðin viðmið.
Helstu viðmið fyrir menntafyrirtæki ársins eru:
- að skipulögð fræðsla sé innan fyrirtækisins,
- að stuðlað sé að markvissri menntun og fræðslu,
- að sem flest starfsfólk taki virkan þátt og
- að hvatning til frekari þekkingaröflunar sé til staðar.
Helstu viðmið vegna menntasprota ársins eru:
- að lögð sé stund á nýsköpun í menntun og fræðslu, innan fyrirtækis og/eða í samstarfi fyrirtækja,
- samstarf fyrirtækja og samfélags um eflingu fræðslu, innan sem utan fyrirtækja.
Skýr og skipulögð gögn hjálpa dómnefnd að meta verkefni. Vinsamlegast skilið greinargerð, að hámarki þrjár A4 blaðsíður þar sem rökstutt er hvers vegna viðkomandi fyrirtæki er tilnefnt og hvernig það uppfyllir viðmiðin sem liggja til grundvallar. Ekki er tekið við tilnefningum eða gögnum eftir 18. desember.
Verðlaunin verða veitt á Menntadegi atvinnulífsins 15. febrúar 2018 en það verður í fimmta sinn sem dagurinn er haldinn. Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni Samorku, Samtaka ferðaþjónustunnar, Samtaka fjármálafyrirtækja, Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu og Samtaka atvinnulífsins.
Það verður forvitnilegt að sjá hvaða fyrirtæki bætast í hóp þeirra fyrirtækja sem hafa hlotið verðlaunin til þessa. Menntafyrirtæki ársins 2017 er Alcoa Fjarðaál en Keilir er menntasproti ársins. Icelandair Hotels var valið menntafyrirtæki ársins 2016 og Securitas menntasproti ársins.
Marel var valið menntafyrirtæki ársins 2015 og Síldarvinnslan á Neskaupstað menntasproti ársins. Samskip var fyrsta fyrirtækið til að hljóta menntaverðlaunin árið 2014 og ferðaþjónustufyrirtækið Nordic Visitor var fyrsti menntasprotinn.
Stjórnendur Alcoa Fjarðaáls ásamt Kristjáni Þór Júlíussyni, þáverandi menntamálaráðherra og Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands við afhendingu menntaverðlaunanna.
Hægt er að horfa á innslög um verðlaunahafana 2017 hér að neðan í Sjónvarpi atvinnulífsins ásamt svipmyndum frá menntadeginum.