Menntakerfi atvinnulífsins á við þrjá framhaldsskóla
Framlag atvinnulífsins í fjölbreytta starfsmenntasjóði sem 100 þúsund manns á vinnumarkaði eiga aðild að nemur álíka upphæð á hverju ári og framlag ríkisins til tveggja framhaldsskóla. Sjóðina nýta bæði fólk og fyrirtæki en til viðbótar leggja mörg fyrirtæki háar upphæðir í menntun starfsmanna sinna sem meta má sem ígildi þriðja framhaldsskólans.