Menntadagur atvinnulífsins 2020 - upptaka

Á Menntadegi atvinnulífsins 2020 sem er í dag verður fjallað um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntun út frá fjölmörgum sjónarhornum. Ráðstefnan fer fram í Hörpu, miðvikudaginn 5. febrúar, í Norðurljósum. Hægt er að horfa á beina útsendingu frá deginum í Sjónvarpi atvinnulífsins kl. 8.30-10. Fyrir alla sem hafa áhuga á jákvæðri þróun samfélagsins!

DAGSKRÁ

Kl. 8.30-10

Ýtt úr vör
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Skapandi starfsumhverfi              
Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt og verkefnastjóri Austurbakka hjá Landsbankanum 

Hverjir eru skapandi?          
Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi og vottaður LEGO SERIOUS PLAY leiðbeinandi hjá Attentus

Skapandi eða apandi?
Áslaug Baldursdóttir, kennari, hönnuður, ritstjóri og margt fleira

Er fyrirtækjarekstur listform?     
Pétur Arason, frumkvöðull hjá Manino

Með hjartað á réttum stað!      
Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar

Hvað er sköpun?
Markús Þór Andrésson, deildastjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur

Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenda Menntaverðlaun atvinnulífsins. 

Kl. 10-10.30
Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna fjölbreytt nám og þjónustu á Menntatorgi atvinnulífsins.

Kl. 10.30-11.30

Málstofa

Að vinna markvisst með sköpun í menntun og á vinnustaðnum
Camilla Uhre Fog, skólastjóri International Scool of  Billund, og fyrrum stjórnandi hjá Lego Foundation.

Lesblinda
Sylvía Melsted, frumkvöðull og tónlistarkona, ásamt gestum.


Menntadagurinn er árlegur viðburður, að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu. 

Starfsmenntasjóður verslunar- og skrifstofufólks, Landsmennt, Starfsafl og Samband stjórnendafélaga eru samstarfsaðilar að Menntadegi atvinnulífsins.