Menntadagur atvinnulífsins 2020
Á Menntadegi atvinnulífsins 2020 verður fjallað um sköpun í íslensku atvinnulífi og menntakerfi út frá fjölmörgum sjónarhornum. Ráðstefnan fer fram í Hörpu, miðvikudaginn 5. febrúar, í Norðurljósum kl. 8.30-11.30 og er opin öllum.
Menntadagurinn er árlegur viðburður, að honum standa Samtök atvinnulífsins, Samorka, Samtök ferðaþjónustunnar, Samtök fjármálafyrirtækja, Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi, Samtök iðnaðarins og Samtök verslunar og þjónustu.
Tryggðu þér sæti með því að skrá þig hér að neðan
Menntadagurinn er fyrir alla sem hafa áhuga á sköpun, menntamálum og þróun. Skorum á stjórnendur, mannauðsstjóra, þróunarteymi, skólafólk og alla sem hafa áhuga á að efla sköpun í störfum sínum að vera með!
Starfsmenntasjóður verslunar og skrifstofufólks, Landsmennt, Starfsafl og Samband stjórnendafélaga styrkja Menntadag atvinnulífsins. Á Menntatorgi atvinnulífsins getur að líta fjölbreytta þjónustu sem fyrirtæki geta sótt sér á sviði menntunar, fræðslu og þjálfunar starfsmanna.
DAGSKRÁ
Kl. 8.30-10
Ýtt úr vör
Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
Skapandi starfsumhverfi
Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt og verkefnastjóri Austurbakka hjá Landsbankanum
Hverjir eru skapandi?
Birna Kristrún Halldórsdóttir, ráðgjafi og vottaður LEGO SERIOUS PLAY leiðbeinandi hjá Attentus
Leikreglur í skapandi umhverfi
Dóra Jóhannsdóttir, leikkona, handritahöfundur og spunakona
Skapandi eða apandi?
Áslaug Baldursdóttir, kennari, hönnuður, ritstjóri og margt fleira
Er fyrirtækjarekstur listform?
Pétur Arason, frumkvöðull hjá Manino
Hönnunarhugsun í nýsköpun
Ívar Þorsteinsson, leiðtogi viðskiptaþróunar, viðskiptatengsla og markaðsstarfs hjá Kolibri
Með hjartað á réttum stað!
Gréta María Grétarsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar
Hvað er sköpun?
Markús Þór Andrésson, deildastjóri sýninga og miðlunar hjá Listasafni Reykjavíkur
Menntaverðlaun atvinnulífsins 2020
Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands og Lilja D. Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, afhenda Menntaverðlaun atvinnulífsins.
Kl. 10-10.30
Kaffi og með því. Fræðslusjóðir og fræðsluaðilar kynna fjölbreytt nám og þjónustu á menntatorgi.
Kl. 10.30-11.30
Málstofa
Að vinna markvisst með sköpun í menntun og á vinnustaðnum
Camilla Uhre Fog, skólastjóri International Scool of Billund, og fyrrum stjórnandi hjá Lego Foundation.
Lesblinda
Sylvía Melsted, frumkvöðull og tónlistarkona, ásamt gestum.