Mannvit og Stefnir til fyrirmyndar
Mannvit og Stefnir luku nýverið við að endurnýja úttekt á
stjórnarháttum sínum og er fyrirtækjunum því heimilt að nota merki
úttektarinnar næsta árið til marks um árangurinn. Úttektarferlið
var sett á laggirnar árið 2011 með með samstarfssamningi
Viðskiptaráðs Íslands, Samtaka atvinnulífsins, NASDAQ OMX Iceland
og Rannsóknarmiðstöðvar um stjórnarhætti við Háskóla
Íslands.
Bæði fyrirtækin luku
úttektarferlinu í maí á þessu ári, en það var KPMG sem annaðist
úttektina. Að mati Rannsóknarmiðstöðvarinnar gefa niðurstöður skýra
mynd af stjórnarháttum fyrirtækjanna og benda til að þau geti að
mörgu leyti verið öðrum fyrirtækjum til fyrirmyndar. Þá sýna
úttektirnar að bæði fyrirtækin hafi brugðist við þeim tillögum
Rannsóknarmiðstöðvarinnar sem lagðar voru fram í fyrri
umsögnum.
Viðskiptaráð Íslands, Samtök atvinnulífsins og Nasdaq OMX á
Íslandi óska forsvarsmönnum Mannvits og Stefnis til hamingju með
áfangann og vona að fleiri fyrirtæki fylgi í kjölfarið. Með því má
með virkum hætti bæta stjórnarhætti fyrirtækja og um leið efla
upplýsingagjöf til markaðsaðila og annarra áhugasamra um áherslur
stjórnenda í atvinnulífinu.