Málþing um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu
Landsmennt efnir til málþings um starfsmenntun og fræðslu í atvinnulífinu í lok maí. Landsmennt er fræðslusjóður Samtaka atvinnulífsins og verkafólks á landsbyggðinni en á þinginu verður einnig fjallað um starfsemi Landsmenntar. Í fyrra veitti sjóðurinn fræðslustyrki til 79 fyrirtækja fyrir um 17 milljónir króna. Þá voru veittir 1866 styrkir samtals að upphæð 46 milljónum króna. Málþingið verður í Skíðaskálanum í Hveradölum 30. maí kl. 11.30 - 15.30.
Fulltrúum fyrirtækja innan Samtaka atvinnulífsinser boðið til málþingsins ásamt aðstandendum Landsmenntar, aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands á landsbyggðinni og fulltrúum frá símenntunarmiðstöðvum landsbyggðarinnar. Landsmennt mun bjóða þátttakendum upp á hádegisverð og kaffi.
Dagskrá
11:15 Mæting í Skíðaskálann í Hveradölum
11:30 Ávarp frá formanni stjórnar Landsmenntar, Aðalsteini Á. Baldurssyni
11:50 Erindi um starfsemi Landsmenntar; Kristín Njálsdóttir, forstöðumaður
12:20 Hádegisverður
13:20 Starfsmenntun og fræðsla í atvinnulífinu frá sjónarhóli fyrirtækja
Steinunn K. Pétursdóttir, starfsmannastjóri hjá Smellinn hf. Akranesi
13:40 Starfsmenntun og fræðsla í atvinnulífinu frá sjónarhóli stéttarfélags
Þórunn Kristinsdóttir, formaður Stjörnunnar í Grundarfirði
14:10 Kaffi
14:30 Starfsmenntun og fræðsla í atvinnulífinu frá sjónarhóli símenntunar
Ásmundur Sverrir Pálsson, framkv.stj. Fræðslunets Suðurlands
15:10 Umræður
15:30 Samantekt og dagskrárlok.
Tekið er á móti skráningu fram til 25. maí á skrifstofu Landsmenntar - með tölvupósti á netfangið landsmennt@landsmennt.is eða í síma 599 1450.