Málþing um Jón Sigurðsson og atvinnulífið í Hofi á Akureyri
Í tilefni þess að á árinu verða 200 ár liðin frá fæðingu Jóns
Sigurðssonar forseta efna Samtök atvinnulífsins til málþings í Hofi
á Akureyri um Jón og sýn hans á atvinnulífið, föstudaginn 25. mars
kl. 14:00-16:30. Fjórir fyrirlesarar, þau Guðjón Friðriksson
sagnfræðingur, Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur, Sigríður Á.
Snævarr sendiherra og Þorsteinn Pálsson fv.
ráðherra munu fjalla um áhrif Jóns Sigurðssonar á atvinnulíf á
Íslandi í fortíð, nútíð og framtíð. Málþingið er öllum opið og
er skráning hafin á vef Samtaka atvinnulífsins.
Jón Sigurðsson og atvinnulífið -
dagskrá.
Föstudaginn 25. mars kl. 14:00-16:30. Hofi Akureyri
Setning
Vilmundur Jósefsson, formaður SA.
Jón Sigurðsson og liberalisminn
Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur.
Áhrif frá Jóni Sigurðssyni á atvinnuuppbygginguna á
Vestfjörðum í byrjun 20. aldar
Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur.
Hvað geta leiðtogar samtímans lært af Jóni Sigurðssyni
Sigríður Á. Snævarr sendiherra.
Nútíminn í ljósi baráttu Jóns Sigurðssonar fyrir fullveldi
og viðskiptafrelsi
Þorsteinn Pálsson, fv. ráðherra.
Málþingsslit
Sólveig Pétursdóttir, formaður 200 ára afmælisnefndar
Jóns Sigurðssonar
SMELLIÐ HÉR TIL AÐ SKRÁ ÞÁTTTÖKU
Tengt efni: