Málefnastarf SA
Á næstunni munu málefnahópar SA hefja undirbúning aðalfundar SA sem haldinn verður 29. apríl nk. Málefnastarfið er opið öllum aðildarfyrirtækjum og -félögum og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig í málefnahópa, með tölvupósti til sa@sa.is. Hóparnir eru:
Efnahagshópur
Vinnumarkaðshópur
Jafnréttishópur
Lífeyrishópur
Menntahópur
Skattahópur
Umhverfishópur
Evrópuhópur
Samkeppnislagahópur
Á málefnasíðu SA má finna þau rit sem SA hafa gefið út á grundvelli starfsemi málefnahópanna undanfarin tvö ár.