Lokaráðstefna Jafnréttiskennitölunnar - 19. september
Ráðstefna um nýtingu mannauðs í stjórnun og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja verður haldin í Salnum í Kópavogi þann 19. september næstkomandi. Með ráðstefnunni lýkur verkefninu um Jafnréttiskennitöluna, sem unnið hefur verið af Rannsóknasetri í vinnurétti og jafnréttismálum við Háskólann á Bifröst en Samtök atvinnulífsins eru meðal samstarfsaðila að verkefninu. Ráðstefnan er jafnframt liður í afmælisdagskrá Háskólans á Bifröst á 90 ára afmælisári hans.
Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar verður Eleanor Tabi Haller-Jorden framkvæmdastjóri Catalyst í Evrópu, leiðandi fyrirtækis í rannsóknum á sviði jafnréttis og viðskipta. Aðrir fyrirlesarar eru Marit Hoel framkvæmdastjóri Centre for Corporate Diversity í Noregi og Nordic 500 könnunarinnar, Elín Blöndal prófessor við lagadeild Háskólans á Bifröst, Margrét Sæmundsdóttir hagfræðingur viðskiptaráðuneytisins, Illugi Gunnarsson alþingismaður og Þór Sigfússon formaður Samtaka atvinnulífsins.
Ráðstefnan í Salnum er öllum opin en ráðstefnugjald er 4.500 krónur og er morgunverður innifalinn. Húsið verður opnað kl. 8:00 en dagskráin stendur frá 8.30-12.30.
Skráning er á vef Háskólans á Bifröst þar sem einnig má nálgast dagskrá ráðstefnunnar.
Sjá einnig:
Vefur Rannsóknaseturs í vinnurétti og jafnréttismálum við Háskólann á Bifröst