Lissabon-ferlið og stækkun EES
Á fundi sínum í dag samþykkti ráðgjafarnefnd EFTA tvö álit, annars vegar um tengsl EFTA við hið svonefnda Lissabon-ferli ESB og hins vegar um stækkun EES.
Lissabon-ferlið
Í áliti nefndarinnar um tengsl EFTA við Lissabon-ferlið er
minnt á að megin markmið ferlisins sé að gera ESB að
samkeppnishæfasta hagkerfi veraldar fyrir árið 2010, m.a. með
áherslu á þekkingarþjóðfélagið. Nefndin er þeirrar skoðunar að
þessi markmið eigi að gilda fyrir allt Evrópska efnahagssvæðið og
telur nauðsynlegt að EFTA EES ríkin geri sitt ítrasta til að svo
verði. Lögð er áhersla á mikilvægi þess að ríkin taki þátt í þeirri
samanburðarvinnu (e. benchmarking) sem tengist markmiðum ESB eins
og kostur er og þeirri von lýst að EFTA EES ríkin fái að vera með í
samanburðarskýrslum ESB. Þá vill nefndin að EFTA EES ríkin setji
sér skýrari markmið í þessu skyni og óskar aukins samráðs við
nefndina af hálfu ríkisstjórnanna.
Stækkun EES
Í áliti nefndarinnar um stækkun EES er fjallað um
fyrirhugaða stækkun ESB og áhrif hennar á EFTA EES ríkin. Nefndin
kallar eftir aðlögun EES samningsins að sumum þeirra breytinga sem
orðið hafa á Rómarsáttmála ESB frá gerð EES samningsins, og telur
áríðandi að EFTA EES ríkin myndi sér sameiginlega stefnu í því
skyni. Þá leggur nefndin áherslu á mikilvægi þess að tryggja sem
bestan aðgang fyrir sjávarafurðir til ESB. Loks leggur nefndin
áherslu á mikilvægi þess að kynna EES samninginn fyrir væntanlegum
aðildarríkjum ESB.