Leyfa á frjálsa för fólks nú þegar
Þegar tíu ný ríki gerðust aðilar að ESB og EES 1. maí 2004 tóku flest fyrri aðildarríki upp tímabundnar takmarkanir á frjálsri för fólks frá flestum nýju aðildarríkjanna. Hér á Íslandi hafa gilt mun strangari reglur en í Danmörku, Noregi og Svíþjóð, sem setti engar takmarkanir. Ný skýrsla norrænu ráðherranefndarinnar sýnir að nýir EES-borgarar hafa komið til allra Norðurlandanna vegna atvinnu, langmest til Noregs, og alls staðar haft jákvæð áhrif á vinnumarkað og efnahagslíf. Strangar reglur hafa m.a. aukið eftirspurn eftir þjónustusamningum við fyrirtæki í nýju aðildarríkjunum.
Samkvæmt niðurstöðum skýrslunnar sem unnin var af norsku FAFO
stofnuninni, hefur reynslan hins vegar verið sú að þau ríki sem
ekki komu á fót neinum slíkum takmörkunum hafa alls ekki fengið
hlutfallslega fleira erlent starfsfólk frá hinum aðildarríkjum en
reyndin hefur orðið í ríkjum sem komu á fót slíkum takmörkunum. Frá
maí til desember 2004 voru þannig gefin út 4.000 slík atvinnuleyfi
(til meira en þriggja mánaða) í Svíþjóð, en á sama tíma voru þau
20.500 í Noregi, 2.200 í Finnlandi og Danmörku og 600 á Íslandi. Þá
kemur fram í skýrslunni að þótt um aukningu sé að ræða í öllum
löndunum hafi ekkert þeirra fundið fyrir neikvæðum áhrifum hvað
varðar jafnvægi á vinnumarkaði.
Ari Edwald segir í samtali við Morgunblaðið að það komi vel fram í
skýrslunni að engin grundvallarbreyting eða holskefla hafi orðið
með innkomu nýrra ríkja á evrópska vinnumarkaðinn, ekki frekar en
fyrri reynsla af stækkuðum vinnumarkaði sýni. "Við erum með harðari
reglur og takmarkaðri aðgang en norrænu ríkin að Finnlandi
undanskildu, þó aðstæður á okkar vinnumarkaði séu þær að við höfum
mesta þörf fyrir starfsfólk." Ari segist í viðtalinu telja að
starfsmannaleigur geti átt rétt á sér og gegnt þýðingarmiklu
hlutverki. "En ég held það sé augljóst að sú framkvæmd að ráða fólk
til sín og hafa á launaskrá hjá sér liggi íslenskum fyrirtækjum
miklu nær en að skipta við starfsmannaleigur. Ég tel það hafa verið
neyðarbrauð sem of miklar takmarkanir hafi stuðlað að."