Leiðtogaumræður í Reykjavík 2018 - upptaka
Oddvitar sjö framboða í Reykjavík fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi, mætust á opnum fundi í Gamla bíó, miðvikudaginn 9. maí.
SA, SAF, SI og SVÞ boðuðu til fundarins þar sem rætt var um sambúð borgar og atvinnulífs.
Þátt tóku, Dagur B. Eggertsson, Samfylkingunni, Dóra Björt Guðjónsdóttir, Pírötum, Eyþór Arnalds, Sjálfstæðisflokknum, Ingvar Jónsson, Framsóknarflokknum, Líf Magneudóttir, Vinstri-grænum, Vigdís Hauksdóttir, Miðflokknum og Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, Viðreisn.
Andrés Magnússon, framkvæmdastjóri SVÞ, Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður SAF og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI spurðu frambjóðendur um helstu stefnumál þeirra gagnvart atvinnulífinu. Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA, stýrði fundi.