Launakostnaður aukist tvöfalt á við viðskiptalöndin
Á síðasta samningstímabili, sem segja má að nái yfir tímabilið frá fyrsta ársfjórðungi 1997 til fyrsta ársfjórðungs 2000, þ.e. slétt þrjú ár, hækkuðu laun á almennum markaði um 20,4% skv. launavísitölu Hagstofunnar. Á sama tíma hækkaði gengi krónunnar um 5,5% og samkvæmt því hækkuðu laun á Íslandi um 27,4% í erlendri mynt á þessu tímabili. Á sama tíma var hækkunin 8,5% að meðaltali í viðskiptalöndunum þannig að laun hér á landi hækkuðu þrefalt meira en hjá keppinautunum. Þetta var staðan í upphafi yfirstandandi samningstímabils.
Gengisbreytingar krónunnar mikil áhrif á yfirstandandi
samningstíma
Launahækkanir hér á landi hafa verið enn meiri á yfirstandandi
samningstímabili en á því síðasta. Á tímabilinu frá 1.
ársfjórðungi 2000 til 1. ársfjórðungs 2003 hækkuðu laun á almennum
markaði um 24,5% skv. launavísitölu Hagstofunnar. Gengi
krónunnar lækkaði hins vegar á milli þessara tímapunkta þannig að
laun í erlendri mynt hækkuðu aðeins um tæp 11%. Laun hækkuðu
á hinn bóginn um tæp 9% að meðaltali í viðskiptalöndunum þannig að
samkeppnisstaðan var heldur verri á fyrri hluta þessa árs en í
upphafi samningstímabilsins. Þessu til viðbótar hefur
kostnaður íslenskra fyrirtækja aukist vegna hækkunar
tryggingagjalds í upphafi síðasta árs um 0,5% og stóraukinna
framlaga til viðbótarlífeyrissparnaðar launamanna sem áætlað er að
hafi numið allt að 1,7% af launakostnaði.
Meira en tvöföld hækkun viðskiptalandanna
Þegar yfirstandandi samningstímabil og það síðasta eru skoðuð í
heild, þ.e. þróunin síðustu sex ár, kemur í ljós að laun á almennum
markaði hér á landi hafa hækkað um 45% mælt í erlendum gjaldmiðli
samanborið við 18% hækkun að meðaltali í viðskiptalöndum
okkar. Hækkunin hér á landi var því ríflega tvöföld á þessu
tímabili.
(Smellið á myndina)
