Launahækkanir nær tvöfalt meiri hérlendis
Dönsku samtök atvinnulífsins hafa birt niðurstöður ársfjórðungslegrar launakönnunar sinnar. Laun á almennum vinnumarkaði í Danmörku hækkuðu um 3,9% frá sama tíma í fyrra á 2. ársfjórðungi þessa árs. Þetta er nokkur lækkun á breytingartaktinum frá 1. ársfjórðungi en þá hækkuðu launin um rúm 4%. Sambærilegar hækkanir launa eru 3% að meðaltali á ári í ríkjum ESB.
Nær tvöfalt meiri launahækkanir hérlendis
Samkvæmt launavísitölu Hagstofu Íslands hækkuðu laun hérlendis
um 5,5% á almennum vinnumarkaði á 2. ársfjórðungi.
Launahækkanir voru enn meiri í opinbera geiranum, eða 5,9%.
Samkvæmt þessu hafa launahækkanir verið næstum tvöfalt meiri hér á
landi en að jafnaði meðal okkar samkeppnisríkja og eru þær
langhæstar hérlendis.