Læknisvottorðum hafnað og stéttarfélag dæmt
Í Danmörku hefur fallið dómur í máli þriggja uppeldisstarfsmanna
við stofnun á Sjálandi þar sem læknisvottorðum þeirra er hafnað og
fjarvera þeirra frá vinnu úrskurðuð vinnustöðvun sem brjóti gegn
kjarasamningi. Jafnframt var stéttarfélag þremenninganna dæmt til
bótagreiðslu, en það var talið standa að baki fjarveru þeirra. Í
samtali við danska dagblaðið Jyllands-Posten segir formaður
vottorðanefndar danskra læknasamtaka að læknisvottorð séu ekki
alltaf neinn "endanlegur sannleikur," enda m.a. byggð á upplýsingum
viðkomandi sjúklings.