Lægstu launin hafa hækkað mest
Undanfarin samningstímabil hafa verið stigin stór skref í hækkun lægstu launataxta. Í ársbyrjun 1997 var lægsti launataxti tæpar 53.000 krónur á mánuði. Lágmarkslaun eru nú 93.000 og að viðbættum desember- og orlofsuppbótum eru þau tæpar 98.000. Lágmarkslaunin hafa hækkað um 75% á síðustu sex árum samanborið við 50% hækkun launa á almennum vinnumarkaði.
Tvöfalt meiri kaupmáttaraukning lægstu launa
En verðbólgan hefur hoggið skörð í þessar hækkanir þótt
því fari fjarri að hún hafi étið þær upp. Kaupmáttur lágmarkslauna
hefur hækkað um 40% frá ársbyrjun 1997 sem er ríflega tvöfalt
meiri kaupmáttaraukning en almennt gerist hjá launafólki á
almennum vinnumarkaði, þar sem kaupmáttaraukningin nemur tæpum
20%.
(Smellið á myndina)
Svigrúmið
fullnýtt
Rétt er að hafa í huga að þessar miklu lagfæringar á lægstu
launatöxtunum komu í kjölfar mjög langs tímabils þar sem engar
sérstakar hækkanir höfðu verið gerðar á launatöxtum. Sérstök hækkun
var gerð á lágmarkslaunum árið 1986 og nýtt taxtakerfi var byggt
upp í kjölfarið árið 1987. Það má segja að liðið hafi tæpur
áratugur, þ.e. árin 1988-1996, án þess að gerðar hafi verið
markverðar tilraunir til sérstakrar hækkunar lægstu launataxta. Það
má því segja að komið hafi verið tilefni til sérstakrar hækkunar
lágmarkslauna hafi safnast upp og svigrúmið hafi verið fullnýtt
undanfarin ár. Á hinn bóginn er næsta víst að við núverandi
aðstæður, þar sem almennir launataxtar eru mun nær greiddum launum
en áður, muni sérstakar hækkanir lægstu launa mistakast og færast
upp allan launastigann.
