Lægri framleiðni opinberra starfsmanna?
Framleiðni á vinnumarkaði (þ.e. afköst á hverja vinnustund) er minni hér á landi en víðast hvar annars staðar, líkt og sjá má á súluritinu hér að neðan. Framleiðni er mjög mikilvæg, því að á henni eru kjörin byggð. Ekki er hægt að bæta þau til langframa nema framleiðni aukist. Rétt er að geta þess að á bak við tölurnar er mismikið fjármagn og mismiklar náttúruauðlindir og getur það átt þátt í þeim mun sem er á löndunum.
Framleiðni í opinberum rekstri
Því er oft haldið fram að framleiðni sé minni hjá hinu opinbera en
í einkageiranum. Þá er einkum vísað til þess að opinber
rekstur lúti öðrum lögmálum en einkarekstur. Hvorki sé
hagnaðarvon fyrir hendi né óttinn við gjaldþrot og ýmis önnur
sjónarmið uppi en ríkjandi eru í rekstri fyrirtækja á
markaði. Þess vegna m.a. hafa ríki og sveitarfélög viljað
losa sig út úr rekstri sem ekki telst vera á þeirra könnu. Engar
tölur liggja hins vegar fyrir um framleiðni í opinberum rekstri á
Íslandi. Ástæðan er sú að opinber þjónusta er yfirleitt ekki
seld á markaði. Danska fjármálaráðuneytið hefur hins vegar fetað
sig áfram við að mæla framleiðni í opinberum rekstri. Það
styðst við mælingar þar sem það er hægt, til dæmis um fjölda útlána
af bókasöfnum og fjölda nemenda í skólum. Nýlega var skýrt frá því
að samkvæmt slíkum mælikvörðum hefði framleiðni opinberra
starfsmanna í Danmörku minnkað um 10% á árunum 1990 til 1999 (sjá frétt á
vef SA ).
Hraðari kaupmáttaraukning
Frá árinu 1996 hafa laun opinberra starfsmanna og bankamanna hér á
landi vaxið um 5-10% meira en laun á almennum vinnumarkaði,
samkvæmt launavísitölu Hagstofunnar og könnun
Kjararannsóknarnefndar. Spurningin er hvort þessar hækkanir byggist
á svigrúmi sem aukin framleiðni hafi skapað eða hvort í þeim felist
bein ávísun á skattahækkanir á almenning. Á árunum 1996 til
2000 fjölgaði starfsfólki í opinberri stjórnsýslu, í
fræðslustarfsemi og í heilbrigðis- og félagsþjónustu um u.þ.b.
2,5%, skv. vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar. Fengur væri að
upplýsingum um hvernig framleiðni opinberra starfsmanna breyttist á
þessum árum.