Kynningarfundir: Leiðbeiningar um stjórnarhætti
Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð Íslands og Nasdaq OMX Ísland, munu standa fyrir kynningarfundum í september á þriðju útgáfu leiðbeininga um stjórnarhætti fyrirtækja sem komu út í sumar. Um verður að ræða stutta fundi á tímum sem henta stjórnendum og starfsmönnum aðildarfyrirtækja. Farið verður yfir efnistök nýju leiðbeininganna og spurningum svarað.
Kynningarfundirnir eru hluti af aukinni áherslu SA,
Viðskiptaráðs og Kauphallarinnar á að íslensk fyrirtæki tileinki
sér viðmið og leiðbeiningar um góða stjórnarhætti. Það er samhljóma
álit þessara samstarfsaðila að almenn innleiðing leiðbeininga um
góða stjórnarhættir sé eitt af mörgum mikilvægum skrefum í átt að
endurreisn íslensks viðskipta- og efnahagslífs.
Aðildarfyrirtæki geta óskað eftir kynningarfundi með því að hafa
samband við Harald I. Birgisson, lögfræðing Viðskiptaráðs, með
tölvupósti á haraldur@vi.is eða
í síma 510-7109 einnig Hörð Vilberg hjá SA, hordur@sa.is eða í síma
591-0005.
Miðað er við að fundirnir verði haldnir hjá SA eða VÍ og verði
félögum að kostnaðarlausu.
Sjá nánar: