Kosningu formanns SA lýkur kl. 12
Rafrænni kosningu formanns Samtaka atvinnulífsins lýkur í dag kl. 12 fimmtudaginn 7. apríl. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, gefur áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Úrslit verða kynnt á aðalfundi SA sem fram fer í dag á Hótel Nordica kl. 13-16 undir yfirskriftinni Atvinnuleiðin út úr kreppunni. Opin dagskrá hefst kl. 14 og stendur skráning yfir á vef SA.
Á forsíðu vefs SA -
er hnappur merktur Formannskjör.
Smellt er á hnappinn til að komast inn á sérstakan
kosningarvef. Þar nálgast félagsmenn kjörseðil sinn með hjálp
lykilorðs.
Nánari upplýsingar um kosingu formanns SA má fá á skrifstofu SA í síma 591 0000.
Kosningakerfið er hannað af fyrirtækinu Outcome hugbúnaði ehf. og er umsjón kosninganna hjá þeim. Atkvæði kjósenda verða ekki rakin af SA og kosningin því leynileg.