Kosningu formanns SA að ljúka
Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins fyrir starfsárið 2018-2019 stendur yfir meðal aðildarfyrirtækja SA en henni lýkur kl. 16 á sunnudaginn. Eyjólfur Árni Rafnsson gefur áfram kost á sér en hann tók við formennsku árið 2017.
Aðalfundur Samtaka atvinnulífsins 2018 hefst í Hörpu kl. 12 mánudaginn 16. apríl þar sem verður greint frá kjöri formanns og stjórnar SA 2018-2019. Kjörgengir til embættis formanns eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna.
Nánari upplýsingar um formann SA
Ársfundur atvinnulífsins 2018 fer fram í kjölfar aðalfundarins í Hörpu - Silfurbergi, kl. 14-15.30 og er öllum opinn. Framfarir í hundrað ár er yfirskrift fundarins en á árinu fagna landsmenn því að heil öld er frá því Ísland varð frjálst og fullvalda ríki þann 1. desember árið 1918.
Eyjólfur Árni Rafnsson, formaður, forsætisráðherra Íslands, Katrín Jakobsdóttir ávarpa fundinn og dr. Eamonn Butler framkvæmdastjóri, Adam Smith-stofnunarinnar í London.
Boðið verður upp á tímaflakk á fundinum þegar hópur stjórnenda fer í skemmtilegt ferðalag um atvinnusögu Íslands, það sem hefur áunnist á hundrað árum og framtíðina.
Þátt taka Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, Orri Hauksson, forstjóri Símans, Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar og Anna Svava Knútsdóttir, eigandi ísbúðarinnar Valdís ásamt Stefáni Pálssyni sagnfræðingi.
Halldór Baldursson mun teikna skopmynd morgundagsins á staðnum en fundinum stýrir Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA.
Hægt er að tryggja sér sæti með því að skrá sig hér að neðan. Þeir sem rétt hafa til setu á aðalfundi SA geta jafnframt skráð sig hér að neðan.
SKRÁNING