Kosning formanns SA er hafin (3)
Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.
Á forsíðu vefs SA til vinstri - er hnappur merktur Formannskjör. Smellt er á hnappinn til að komast inn á sérstakan kosningarvef. Þar nálgast félagsmenn kjörseðil sinn með hjálp lykilorðsins.
Rafrænni kosningu lýkur kl. 12:00 á aðalfundardag þann 18. apríl 2012.
Aðalfundur Samtaka
atvinnulífsins 2012 fer fram á Hótel Nordica miðvikudaginn 18.
apríl kl. 13-16, á síðasta degi vetrar. Yfirskrift fundarins er
Uppfærum Ísland og er skráning
á fundinn hafin á vef SA. Meðal ræðumanna verður
Christoffer Taxell, fyrrverandi menntamálaráðherra
Finnlands og forystumaður í finnsku atvinnulífi. Hópur stjórnenda
mun ræða um hvernig uppfæra má Ísland og lagðar verða fram tillögur
þess efnis í nýju riti Samtaka atvinnulífsins.
Nánari upplýsingar um kosningu formanns SA má fá á skrifstofu SA í síma 591 0000 eða með því að senda tölvupóst á audur@sa.is.
Kosningakerfið er hannað af fyrirtækinu Outcome hugbúnaði ehf. og mun umsjón kosninganna vera hjá þeim. Atkvæði kjósenda verða ekki rakin af SA og kosningin því leynileg.