Kosning formanns SA er hafin (1)
Rafræn kosning formanns Samtaka atvinnulífsins er hafin meðal aðildarfyrirtækja samtakanna. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, hefur ákveðið að gefa áfram kost á sér sem formaður. Kjörgengir til embættis formanns SA eru stjórnendur og stjórnarmenn aðildarfyrirtækja og aðildarfélaga samtakanna. Félagsmenn Samtaka atvinnulífsins hafa fengið send lykilorð í pósti til að taka þátt í kosningunni.
Á forsíðu vefs SA - er hnappur merktur Formannskjör. Smellt er á hnappinn til að komast inn á sérstakan kosningarvef. Þar nálgast félagsmenn kjörseðil sinn með hjálp lykilorðsins.
Rafrænni kosningu lýkur kl. 12:00 á aðalfundardag þann 21. apríl 2010.
Aðalfundur SA fer fram á Hótel Nordica á síðasta degi vetrar undir yfirskriftinni: ÍSLAND AF STAÐ.
Nánari upplýsingar um kosingu formanns SA má fá á skrifstofu SA í síma 591 0000 eða með því að senda tölvupóst á jonina@sa.is.
Kosningakerfið er hannað af fyrirtækinu Outcome hugbúnaði ehf. og mun umsjón kosninganna vera hjá þeim. Atkvæði kjósenda verða ekki rakin af SA og kosningin því leynileg.