Kemur ríkisstjórnin Íslandi í gang?
Það besta sem gæti komið fyrir Ísland væri að gerðir yrðu kjarasamningar til þriggja ára og ríkisstjórnin tæki alvöru ákvarðanir um að setja Ísland í gang. Þetta sagði Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, í samtali við fréttastofu RÚV í gærkvöld. Ljóst er að senn dregur til tíðinda í yfirstandandi kjaraviðræðum en samninganefndir SA og ASÍ hittast hjá ríkissáttasemjara í dag. Þar mun ráðast hvort hægt verði að gera kjarasamninga til þriggja ára en bæði SA og ASÍ hafa hafa lýst því yfir að aðkoma ríkisins að slíkum samningum sé nauðsynleg.
Í lok mars voru 14.865 án vinnu á Íslandi og segir Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar í Morgunblaðinu í dag að horfa verði allt aftur til ársins 1930 til að finna jafn erfitt ástand á íslenskum vinnumarkaði. Gissur segir fjölda fólks í virkri atvinnuleit erlendis og margir hafi þegar flutt af landi brott í því skyni.