Kaupmáttur jókst um 3,3%
Á tímabilinu frá 3. ársfjórðungi 2002 til 3. ársfjórðungs 2003
hækkuðu regluleg laun að meðaltali um 5,4%. Á sama tíma hækkaði
vísitala neysluverðs um 2,0%. Samkvæmt því jókst kaupmáttur launa
að meðaltali um 3,3%. Laun kvenna hækkuðu um 6,4% en karla um 4,9%.
Sjá nánar í fréttabréfi Kjararannsóknarnefndar.