Kaupmáttarrýrnun 2001 en hækkun á samningstíma (1)
Samkvæmt launakönnun Kjararannsóknarnefndar (KRN) hækkuðu
dagvinnulaun að meðaltali um 5,8% á tímabilinu frá 1. ársfjórðungi
2001 til 1. ársfjórðungs 2002. Á sama tíma hækkaði vísitala
neysluverðs um 8,7%. Samkvæmt því rýrnaði kaupmáttur dagvinnulauna
að meðaltali um 2,7% á tímabilinu. Launahækkun flestra starfsstétta
var á bilinu 3,9% til 8,1%. Laun kvenna hækkuðu um 6,0% en karla um
5,7%. Laun á höfuðborgarsvæði hækkuðu um 6,2% en laun utan
höfuðborgarsvæðis um 5,2%.
4,2% kaupmáttaraukning á samningstímanum
Samkvæmt mælingum KRN var kaupmáttur 4,2% hærri á 1. ársfjórðungi
2002 en á 1. ársfjórðungi 2000. Hann hafði því hækkað að meðaltali
um 4,2% á yfirstandandi samningstímabili þegar þarna er komið
sögu.