Jákvæð frétt: Rifós eykur bleikjueldi til útflutnings
Hjá fiskeldisfyrirtækinu Rifósi hf. í Kelduhverfi horfa menn
bjartsýnir fram á veginn og eru að búa sig undir stækkun
fyrirtækisins. "Við erum að hefja uppbyggingu á bleikjueldi á
landi," segir Hlífar Karlsson, framkvæmdastjóri Rifóss en um algera
stefnubreytingu er að ræða þar sem allt eldi fyrirtækisins hefur
verið í sjókvíum hingað til. "Við höfum einnig ákveðið að hætta
laxeldi og snúa okkur alfarið að bleikjueldi til útflutnings á
Ameríkumarkað."
Rifós hf. hefur nú starfsleyfi til 1.000 tonna eldis á bleikju að
uppfylltum ákveðnum skilyrðum. Hlífar segir að stefnt sé að því að
20% eldisins fari fram á landi til að byrja með en ef vel tekst til
getur hlutfallið orðið allt að 40%.

"Þetta helgast af því að við höfum yfir að ráða 10°C eldishita
frá náttúrulegum uppsprettum og búum þá við kjörhita allt árið á
landi en í sjó er mikil hitasveifla og vaxtartíminn einungis 6-7
mánuðir. Hér er því um mjög gjaldeyrisskapandi uppbyggingu að
ræða," segir Hlífar.
Samtök atvinnulífsins óska Rifósi góðs gengis við stækkunina og
hvetja fólk úr atvinnulífinu til að senda okkur fleiri jákvæðar
fréttir. Við viljum miðla því sem vel er gert og getur orðið fólki
hvatning. Við munum birta fleiri jákvæðar fréttir næstu daga.
Pósthólfið er opið ...