Jafnréttisþing föstudaginn 1. nóvember
Samtök atvinnulífsins taka þátt í Jafnréttisþingi sem fram fer
föstudaginn 1. nóvember á Hilton Reykjavík Nordica. Félags- og
húsnæðismálaráðherra og Jafnréttisráð boða til þingsins en hlutverk
þess er að efna til umræðna um málefni kynjajafnréttis og gefa
öllum áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í
jafnréttismálum. Fjallað verður um fjölmargar hliðar jafnréttismála
en megináhersla þingsins að þessu sinni er á jafnrétti á
vinnumarkaði.
Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis.
Dagskrá
jafnréttisþings
Skráning
á þingið