Jafnréttismálin og atvinnulífið
Í erindi sínu á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins á dögunum gerði Ingimundur Sigurpálsson, nýkjörinn formaður samtakanna, jafnréttismálin m.a. að umtalsefni. Sagði hann jafnréttismál eflaust verða ofarlega á baugi á komandi árum og sagði atvinnulífið stundum liggja undir ámæli varðandi frammistöðu í þeim málaflokki. "Staðreyndin er hins vegar sú", sagði Ingimundur, "að ekkert fyrirtæki hefur hagsmuni af því að mismuna starfsfólki sínu. Að velja ekki þann hæfasta eru einfaldlega slakir stjórnunarhættir, sem ekki skila árangri á samkeppnismarkaði. Hagur atvinnulífsins er því ótvírætt fólginn í því, að allir starfsmenn fái notið eigin verðleika og hafi jöfn tækifæri til starfa og starfsþróunar óháð kynferði eða öðrum óskyldum þáttum."
Jöfnun á heimilis- og fjölskylduábyrgð
Þetta er kjarni málsins. Til að ná árangri þarf hins vegar að
horfast í augu við þann félagslega veruleika að þótt margt hafi sem
betur fer áunnist, meðal annars fyrir tilstilli framsækinnar
löggjafar um fæðingarorlof (þótt deila megi um einstök
útfærsluatriði hennar), eru það ennþá konur sem bera meiri ábyrgð á
heimilum og fjölskyldum þessa lands. Það er því lykilatriði að
stuðla enn frekar að jöfnun á heimilis- og fjölskylduábyrgð
kynjanna. Sem dæmi um samfélagsþætti, sem bitna verr á konum en
körlum, nefndi Ingimundur vertrarfrí og óskipulagða starfsdaga í
skólum. Loks sagði hann aukið tillit skólakerfisins til útivinnandi
foreldra mundu leiða til jafnari stöðu á vinnumarkaði og þar með
minni launamunar kynjanna.
Niðurstöður kannana
Samkvæmt nýlegri könnun Jafnréttisráðs og nefndar um efnahagsleg
völd kvenna er óútskýrður launaumunur um 7,5 til 11%, sem samkvæmt
niðurstöðum könnunarinnar stafar af því að "hjónaband, barneignir
og fleira hefur önnur áhrif á laun kvenna en karla." Nýlega kom
fram í könnun Samtaka atvinnulífsins að konur sækjast síður eftir
stjórnunarstöðum en karlar, sem og það mat forsvarsmanna fyrirtækja
að konur væru bundnari en karlar af heimili og fjölskyldu.
Leikskólar, vetrarfrí, starfsdagar...
Það er ekki skoðun Samtaka atvinnulífsins að konur eigi að bera
meiri ábyrgð en karlar á heimili og fjölskyldu. Síður en svo. Allt
ber þetta hins vegar að sama brunni. Leiðin til að sigrast á mældum
launamun kynjanna og auka hlut þeirra í stjórnunarstöðum hlýtur að
byggjast á því að horfast í augu við þennan félagslega veruleika og
gera ráðstafanir sem stuðla í reynd að jöfnum möguleikum kynjanna á
vinnumarkaði og breyttu hugarfari. Góðir leikskólar, nægjanlegt
framboð á dagvistun og gott skipulag skólastarfs eru forsendur
fyrir atvinnuþátttöku flestra foreldra yngri barna. Skortur á
leikskólaplássum, illa skipulagðir starfsdagar í grunnskólum og
leikskólum, vetrarfrí í grunnskólum sem tekin voru upp án nokkurs
tillits til hagsmuna foreldra og án nokkurs samráðs við
atvinnulífið - allt eru þetta hlutir sem valda verulegum
erfiðleikum í atvinnulífinu og bitna meira á konum en körlum.
Á meðan konur bera ennþá meiri ábyrgð á heimilunum en karlar hafa allar slíkar raskanir á reglubundinni atvinnustarfsemi meiri áhrif á atvinnuþátttöku og þar með kjör kvenna en karla. Á þessum sviðum eru því tækifæri til breytinga sem stuðla myndu að jöfnun á mældum launamun kynjanna.
Gústaf Adolf Skúlason