Íslensku gæðaverðlaunin til Sjóvár-Almennra
Sjóvá-Almennar tryggingar hljóta Íslensku gæðaverðlaunin árið
2003. Í umsögn matsnefndar segir m.a. að stjórnun og stefnumörkun
einkennist annars vegar af formföstum aðferðum sem byggja á
traustum faglegum grunni og hins vegar á því sem virðist vera
traust og virðing milli starfs-manna og stjórnenda. Sjá nánar á vef
Stjórnvísi.