Íslendingar treysta eigin vinnuveitanda mjög vel
Íslendingar treysta vinnuveitendum sínum mjög vel en traust til vinnuveitenda fær mjög háa einkunn í árlegum mælingum Capacent á trausti. Aðeins Landhelgisgæslan og lögreglan njóta meira trausts meðal fólks. Þetta kemur fram í könnun sem Capacent Gallup gerði fyrir SA. Rúmlega þrír af hverjum fjórum (76,2%) eru jákvæðir gagnvart sínum vinnustað og bera mikið traust til eigin vinnuveitanda. Aðeins 10,7% bera lítið traust til eigin vinnuveitanda. Traust fólks á eigin vinnuveitanda eykst milli ára en á sama tíma fer traust fólks á stofnunum þjóðfélagsins almennt þverrandi samkvæmt mælingum Capacent.
Þetta eru ánægjulegar fréttir fyrir íslenskt atvinnulíf sem sýna að þrátt fyrir ýmis áföll í atvinnulífinu og mjög neikvæða umræðu ber almenningur mikið traust til íslenskra fyrirtækja.
Íslensk fyrirtæki sem heild njóta meira trausts en dómskerfið og þjóðkirkjan en þess ber að geta að þegar spurt var um almennt traust til þeirra þá lækkar það aðeins á milli ára. Samanburður við traust til stofnana samfélagsins er á myndinni hér að neðan.

Um var að ræða netkönnun fyrir Samtök atvinnulífsins dagana 25. febrúar -3. mars 2012. Í úrtakinu voru 1350 manns á öllu landinu, 18 ára og eldri, handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Capacent Gallup og þjóðskrá. Svarhlutfall var 64,8%.
Tengt efni:
