„Innleiðingarhalli” vandamál innan ESB
Evrópusambandið (ESB) glímir við svokallaðan "innleiðingarhalla". Löggjöf sem samþykkt er í stofnunum ESB er oft ekki innleidd með fullnægjandi hætti í landslög aðildarríkjanna og þannig má segja að Evrópureglum sé ekki framfylgt með fullnægjandi hætti í öllum aðildarríkjum sambandsins. Þetta getur t.d. dregið úr skilvirkni hins sameiginlega innri markaðar Evrópska efnahagssvæðisins (EES) og grafið undan tiltrú á sameiginlegu regluverki, þar sem skapast getur sú tilfinning að "við fylgjum reglunum en þeir ekki." Þá geta einstaklingar og lögaðilar sem hagsmuna eiga að gæta hugsanlega átt skaðabótarétt á hendur umræddum ríkjum ef Evrópureglur hafa ekki verið rétt innleiddar í landslög.
Norðurlöndin standa sig best
Einkum eru það Frakkland, Ítalía og Grikkland sem framkvæmdastjórn
ESB hefur stefnt fyrir Evrópudómstólnum vegna þessa, eða hátt á
annað hundrað sinnum hverju ríki á tímabilinu 1997-2004.
Norðurlöndin í hópi aðildarríkja ESB virðast hins vegar standa sig
best í þessum efnum, en Danmörk, Finnland og Svíþjóð hafa lang
fæstar slíkar stefnur fengið á sig frá framkvæmdastjórninni, eða
11-23 á tímabilinu. Í yfir 90% tilfella úrskurðar Evrópudómstóllinn
að innleiðing umræddrar löggjafar hafi verið ófullnægjandi og
stefna framkvæmdastjórnarinnar þar með a.m.k. að einhverju leyti
verið réttmæt.
Stefnur framkvæmdastjórnar ESB
fyrir Evrópudómstól vegna
ófullnægjandi innleiðingar á löggjöf ESB, 1997-2004
|
Aðildarríki ESB |
Fjöldi |
Hlutfall |
|
Danmörk |
11 |
1% |
|
Svíþjóð |
20 |
2% |
|
Finnland |
23 |
2% |
|
Bretland |
58 |
4% |
|
Holland |
51 |
4% |
|
Austurríki |
76 |
6% |
|
Portúgal |
77 |
6% |
|
Írland |
82 |
6% |
|
Lúxemborg |
93 |
7% |
|
Spánn |
94 |
7% |
|
Þýskaland |
107 |
8% |
|
Belgía |
110 |
8% |
|
Grikkland |
132 |
10% |
|
Ítalía |
175 |
14% |
|
Frakkland |
184 |
14% |
| Alls |
1.293 |
100% |
Ein stefna gegn Íslandi
Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) gegnir í þessu samhengi sambærilegu
hlutverki við framkvæmdastjórn ESB. ESA hefur eftirlit með að
EES-löggjöf sé innleidd með fullnægjandi hætti í EFTA-aðildarríkjum
EES og stefnir þeim fyrir EFTA-dómstólnum ef stofnunin telur
aðildarríkin ekki bregðast við athugasemdum sínum með fullnægjandi
hætti. Á árunum 1997 til 2004 stefndi ESA Noregi sjö sinnum fyrir
EFTA-dómstólnum, Liechtenstein tvisvar og Íslandi einu sinni.
EFTA-ríkin virðast samkvæmt þessu standa sig enn betur í
innleiðingu EES-löggjafar en þau aðildarríki ESB sem þar skara
framúr, þ.e. Norðurlöndin.
Heimild
Um innleiðingarhallann hjá ESB má lesa í nýlegri grein í tímariti
evrópsku stjórnsýslustofnunarinnar (European Institute of Public
Administration), en úttektin nær yfir árin 1997 til 2004 og nær því
eingöngu til þeirra fimmtán ríkja sem áttu aðild að ESB á þessum
árum. Greinarhöfundar starfa við stofnunina og benda þeir m.a. á að
framkvæmdastjórn ESB mætti leggja aukna áherslu á að vekja athygli
aðildarríkjanna á því sem vel er gert, sem og á algengustu mistökum
í þeim ríkjum þar sem oftast virðist vera pottur brotinn. Sjá
nánar á vef EIPA. Upplýsingar um stefnur til EFTA-dómstólsins
má
nálgast á vef hans.