Ingimundur Sigurpálsson kjörinn formaður SA
Á aðalfundi SA var tilkynnt um niðurstöðu úr beinni póstkosningu
formanns samtakanna. Ingimundur Sigurpálsson, forstjóri
Eimskipafélags Íslands, hlaut 97% greiddra atkvæða og er því
réttkjörinn formaður SA starfsárið 2003 til 2004. Hann tekur við af
Finni Geirssyni, sem gegnt hefur formennsku frá stofnun SA í
september 1999 en gaf ekki kost á sér til endurkjörs.
Kosningaþátttaka var 54%.