Ingimundur Sigurpálsson hættir eftir fimm ára formennsku
Ingimundur Sigurpálsson, formaður Samtaka atvinnulífsins, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér til áframhaldandi setu sem formaður SA. Nýr formaður tekur því við á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins sem fram fer föstudaginn 18. apríl í Listasafni Reykjavíkur - Hafnarhúsinu. Ingimundur var fyrst kjörinn formaður SA á aðalfundi samtakanna árið 2003 og tók þá við að Finni Geirssyni sem gegnt hafði formennsku frá stofnun Samtaka atvinnulífsins í september 1999.
Nýr formaður SA verður kosinn með rafrænni kosningu meðal
aðildarfyrirtækja SA. Greint verður frá niðurstöðum kosningarinnar
á aðalfundi SA 18. apríl 2008.
Þór Sigfússon, forstjóri Sjóvá hefur gefið kost á
sér til formanns SA.