Hvar liggja tækifærin í íslensku atvinnulífi?
Háskólinn á Bifröst efnir til hádegisverðarfundar í Iðnó fimmtudaginn 19. nóvember frá kl. 12 til 13:30 þar sem leitast verður við að greina þau tækifæri sem kunna að felast í íslensku atvinnulífi um þessar mundir. "Þrátt fyrir margvíslega erfiðleika í íslensku efnahagslífi hafa mörg fyrirtæki náð eftirtektarverðum árangri að undanförnu. Alþjóðleg frumkvöðlaverðlaun Cartier féllu í ár í skaut íslensku fyrirtæki, Auði Capital, og CCP leitar eftir á annað hundrað manns til starfa hjá fyrirtækinu. Hvað veldur því að sum fyrirtæki blómstra í kreppunni þrátt fyrir vonlausar ytri aðstæður? Er kreppan tækifæri fyrir menntunar- og menningargeirann eða frumkvöðlastarf?," segir í tilkynningu frá Háskólanum á Bifröst.
Á fundinum verður fjallað um þær áskoranir sem íslenskt samfélag; fyrirtæki, menningarlíf og menntastofnanir standa frammi fyrir í efnahagskreppunni.
Ávörp flytja þau Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri CCP, Guðbjörg
Edda Eggertsdóttir, aðstoðarforstjóri Actavis, Ágúst Einarsson,
rektor Háskólans á Bifröst og Hörður Arnarson, forstjóri
Landsvirkjunar. Fundarstjóri verður Bryndís Hlöðversdóttir
aðstoðarrektor sem einnig flytur ávarp.
Að loknum erindum verða umræður með þátttöku framsögumanna á
pallborði. Léttur hádegisverður. Aðgangseyrir 1.200 kr. greiðist
við innganginn.
Hægt verður að horfa á beina útsending hér.