Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtæki
Föstudaginn 21. október efna Deloitte, Samtök fjárfesta, NASDAQ OMX Iceland (Kauphöllin) og Samtök atvinnulífsins til opins morgunverðarfundar um skattamál. Hvar liggja mörkin í skattheimtu? Áhrif á fólk og fyrirtæki er yfirskrift fundarins.
Frummælendur eru Vilhjálmur Bjarnason, framkvæmdastjóri Samtaka fjárfesta, Páll Harðarson, forstjóri NASDAQ OMX Iceland, Guðmundur Thorlacius Ragnarsson, lögfræðingur hjá Arion banka og Vala Valtýsdóttir, sviðsstjóri skatta- og lögfræðisviðs Deloitte.
Fundarstjóri er Benedikt Jóhannesson, framkvæmdastjóri Talnakönnunar.
Fundurinn fer fram á Hótel Nordica (sal H-I á 2. hæð) kl. 8.30-10.00 og er öllum opinn.
Nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA.