Hvað hefði Jón forseti sagt um atvinnulífið?
Í tilefni þess að á árinu verða 200 ár liðin frá fæðingu Jóns Sigurðssonar forseta efndu Samtök atvinnulífsins nýverið til málþings í Hofi á Akureyri um Jón og sýn hans á atvinnulífið. Fjórir fyrirlesarar, þau Guðjón Friðriksson sagnfræðingur, Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur, Sigríður Á. Snævarr sendiherra og Þorsteinn Pálsson fv. ráðherra fjölluðu um áhrif Jóns Sigurðssonar á atvinnulíf á Íslandi í fortíð, nútíð og framtíð. Málþingið var vel sótt og þótti heppnast einkar vel í alla staði. Erindi frummælenda má nú nálgast á vef SA.
Sjá nánar:
Guðjón Friðriksson, sagnfræðingur:
Jón Sigurðsson og liberalisminn
Guðfinna Hreiðarsdóttir sagnfræðingur:
Áhrif frá Jóni Sigurðssyni á atvinnuuppbygginguna á Vestfjörðum í byrjun 20. aldar.
Sigríður Á. Snævarr sendiherra:
Hvað geta leiðtogar samtímans lært af Jóni Sigurðssyni?
Þorsteinn Pálsson, fv. ráðherra:
Nútíminn í ljósi baráttu Jóns Sigurðssonar
fyrir fullveldi og viðskiptafrelsi
Málþingið var samstarfsverkefni 200 ára afmælisnefndar Jóns Sigurðssonar.