Húsfyllir á fundi SA um atvinnumál (1)
Um 50 manns mættu til opins fundar Samtaka atvinnulífsins um atvinnumál sem fram fór að Mælifelli á Sauðárkróki síðastliðinn föstudag. Vilmundur Jósefsson, formaður SA, og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, ræddu m.a. um stöðu efnahagsmála, yfirstandandi kjaraviðræður og hvernig marka megi leiðina út úr kreppunni. Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu sótti fundinn en á honum kom skýrt fram að það sé algjört forgangsmál að skapa nýja sókn í atvinnumálum á traustum grunni svo fólk geti hækkað tekjur sínar og bætt lífskjörin.
Landsbyggðarfólk á leið úr landi
Í byrjun desember voru 14.250 manns á atvinnuleysisskrá
Vinnumálastofnunar og brottflutningur fólks af landinu heldur
áfram. Á fyrstu níu mánuðum ársins voru brottfluttir umfram
aðflutta 1.600 og þar af rúmlega 1.500 Íslendingar. Brottfluttir
umfram aðflutta á landsbyggðinni voru tæplega 1.200 en 400 á
höfuðborgarsvæðinu. Þessari þróun þarf að snúa við en til þess að
það takist þarf að skapa þær aðstæður að fyrirtæki bæði geti og
vilji ráða fólk í vinnu. Mestu kjarabæturnar eru fólgnar í því að
atvinnulaust fólk fái vinnu.

Rjúfa þarf vítahring atvinnuleysis og niðurskurðar
Óvissa um framtíðina veldur m.a. því að fyrirtæki halda
að sér höndum varðandi fjárfestingar og ráðningar fólks en í máli
formanns og framkvæmdastjóra SA kom skýrt fram að eyða megi
óvissunni með því að gera kjarasamninga til þriggja ára, sem byggi
á viðtæku samkomulagi aðila vinnumarkaðarins annars vegar og
stjórnvalda hins vegar um nauðsynlegar aðgerðir sem varða
starfsumhverfi fyrirtækjanna. Rjúfa þurfi vítahring atvinnuleysis
og niðurskurðar.
Efla þarf útfluning
Á fundinum lýstu forsvarsmenn SA yfir áhyggjum af því að
ekki sé meiri kraftur í útflutningi frá Íslandi þrátt fyrir
hagstætt gengi krónunnar um þessar mundir. Lögðu þeir áherslu á að
Íslendingar þurfi að fjárfesta í arðbærum útflutningsgreinum til að
komast út úr kreppunni. Neysludrifinn hagvöxtur komi að litlum
notum.
Fundurinn er liður í fundaröð SA um atvinnumálin sem nú stendur yfir. Nú þegar hafa SA efnt til opinna funda á Ísafirði, Akureyri, Húsavík og Reyðarfirði auk Sauðárkróks. Umfjöllun um fyrri fundi má nálgast hér að neðan ásamt tengdu efni en fleiri fundir verða auglýstir á nýju ári.
Tengt efni:
Leiðari fréttabréfs SA í desember um stöðu kjaraviðræðna
Hagdeild SA: Staða efnahagsmála í desember 2010
Fyrri fundir í fundaröð SA um atvinnumál:
Fundur SA á Ísafirði 9. nóvember
Fundur SA á Akureyri 11. nóvember
Fundur SA á Húsavík 11. nóvember