Huga verður að samkeppnishæfni
Brýnast er að lækka og afnema skatta sem skekkja samkeppnishæfni gagnvart viðskiptalöndum eins og eignaskatta og stimpilgjöld, segir Hannes G. Sigurðsson, aðstoðarframkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, í samtali við Fréttablaðið.
"Hins vegar er neysluhvetjandi skattalækkun á tímabili einhverrar þenslu mjög slæm efnahagsaðgerð og ber að vara við því," segir Hannes. "Skattar eru tæki í efnahagspólitík stjórnvalda og það verður að nota þá sem slíka."
Hannes segir að frá sjónarhóli atvinnulífsins sé langmikilvægast að huga að hlutverki skatta með tilliti til sveiflujöfnunar í efnahagsstjórn. Forgangsraða verði skattalækkunum þannig að þeir skattar sem skekki samkeppnishæfnina séu efst á forgangslistanum. Hann segir að í þessu sambandi megi ekki gleyma ýmsum vörugjöldum sem séu algjörlega óþekkt alþjóðlega.
"Það er náttúrulega búið að taka áfanga í að afnema
eignaskattinn en seinni áfanginn er eftir í því afnámi. Það er mjög
brýnt að fjarlægja þennan skatt, sem er tímaskekkja og var í raun
og veru ígildi fjármagnstekjuskatts." Auk þess að leggja niður
eignaskatt segir Hannes að mjög brýnt sé að lækka stimpilgjöld á
einstaklinga og fyrirtæki, því þau hafi hamlandi áhrif á viðskipti.
Þá segir hann að tekjuskatturinn sé hár hérlendis miðað við ýmis
nágrannalönd og virðisaukaskatturinn með því hæsta sem gerist. Það
hamli m.a. vexti í ferðaþjónustu.