Hraða ber einkavæðingu
Á ráðstefnu Hagfræðistofnunar um skattasamkeppni fjallaði
Michael Walker frá Fraser Institute í Kanada um stöðu Íslands í
alþjóðlegum samanburði. Í máli sínu lagði Walker m.a. áherslu á að
Íslendingar væru skammt á veg komnir í einkavæðingu ríkisfyrirtækja
og hvatti einkum til að hraðað yrði einkavæðingu fjármála- og
fjarskiptafyrirtækja. Hann sagði miklar framfarir hafa átt sér stað
undanfarin ár á sviði efnahagsmála, en varaði jafnframt við hækkun
opinberra útgjalda. Hann sagði fyrirhugaðar skattabreytingar vera
til þess fallnar að koma Íslandi í hóp þeirra ríkja þar sem
skattaumhverfið væri atvinnulífinu hvað vinsamlegast, en alltaf
mætti þó gera betur.