Hópstefnumót atvinnulífsins á Nordica 10. febrúar
Fjölbreyttur hópur fólks úr atvinnulífinu mun koma saman á Hótel Nordica þann 10. febrúar næstkomandi. Þá efna Samtök atvinnulífsins, Félag kvenna í atvinnurekstri, Viðskiptaráð Íslands, Leiðtoga-Auður, iðnaðarráðuneytið, efnahags- og viðskiptaráðuneyti og Creditinfo til morgunverðarfundar þar sem m.a. verður greint frá því hvaða leiðir viðskiptalífið hyggst fara til að fjölga konum í forystusveit atvinnulífsins auk þess sem nýjar tölur Creditinfo um kynjahlutföll í atvinnulífinu verða birtar. Konur og karlar sem koma saman til fundarins greiða aðeins eitt þátttökugjald en til þessa hafa fundir sem fjalla um karla og konur í forystusveit atvinnulífsins einkum verið sóttir af konum.
Fundurinn er haldinn til að fylgja eftir samstarfssamningi SA, FKA og VÍ sem undirritaður var 15. maí 2009 um að fjölga konum í forystusveit íslensk atvinnulífs til loka ársins 2013 þannig að hlutur hvors kyns verði ekki undir 40%. Allir stjórnmálaflokkar sem sæti eiga á Alþingi skrifuðu undir samninginn og veita honum stuðning sinn.
Skráning og morgunverður frá kl.8:00 en formleg dagskrá hefst stundvíslega kl. 8:15 og verður lokið ekki síðar en kl. 10:00.
Sjá nánar:
