Höfum tapað tveimur og hálfum árgangi á síðustu 10 árum
Á árunum 2001-2010 fluttu 7.500 fleiri íslenskir ríkisborgarar frá landinu en til þess. Fækkunin samsvarar tveimur og hálfum árgangi. Aðflutningur erlendra ríkisborgara hefur vegið upp á móti brottflutningnum en á árunum 2001-2010 fluttu 17.030 erlendir ríkisborgarar til landsins. Athygli vekur að síðastliðna hálfa öld hafa mun fleiri íslenskir ríkisborgarar flutt brott af landinu en til þess.
Þetta kemur fram í nýju riti SA, Rjúfum kyrrstöðuna, þar sem meðfylgjandi tafla er birt:
Á tímabilinu 1961-2010 voru brottfluttir Íslendingar umfram aðflutta 21.375 talsins sem nemur 8,7% af meðalíbúafjölda landsins á tímabilinu en flestir fóru síðasta áratuginn. Brottflutningurinn hefur jafnast með aðflutningi erlendra ríkisborgara undanfarna þrjá áratugi.
Aðeins tólf sinnum á síðustu 50 árum hafa fleiri íslenskir ríkisborgarar flutt til landsins en frá því, 38 ár fækkaði þeim. Flutningsjöfnuður Íslendinga hefur aðeins einu sinni verið jákvæður á síðustu 10 árum. Brottflutningur Íslendinga hefur yfirleitt aukist verulega í kjölfar mikils falls kaupmáttar launa. Sex ár eða árabil skera sig úr hvað þetta varðar, þ.e. árið 1970, 1976-1977, 1984-1986, 1989, 1995 og 2009. Á þessum tímum hafði kaupmáttur launa fallið nýlega um meira en 10%. Brottflutninginn á þessum árum má því að miklu leyti rekja til minni kaupmáttar en hann féll um 13% árin 1968-1969, 12% árið 1975, 17% árið 1983, 15% á tímabilinu 1988-1994 og 11% árin 2008-2009.
Mikill útflutningur íslensks vinnuafls
Brottflutningur Íslendinga hefur aldrei verið meiri en árið 2009 en þá voru þeir tæplega 2.500 fleiri en aðfluttir. Brottflutningur ársins 2010 kemur næst í röðinni með rúmlega 1.700 umfram aðflutta. Samtals fluttu 4.646 fleiri íslenskir ríkisborgarar frá landinu en til þess á árunum 2008-2010. Það svarar til 1,5% íbúafjöldans.
Brottflutningur íslenskra ríkisborgara umfram aðflutta á síðustu árum hefur verið hlutfallslega mestur í aldurshópnum 25-54 ára. Árið 2010 voru tæplega 70% brottfluttra umfram aðflutta á þessu aldursbili og 57% árið 2009. Það felur í sér að stór skörð hafa myndast í vinnuafl landsmanna.
Sjá nánar:
Umfjöllun um fólksflótta í hálfa öld í nýju riti SA: Rjúfum kyrrstöðuna (bls. 10-13)

