Halldór Árnason til SA
Halldór Árnason, hagfræðingur, hefur
verið ráðinn til starfa á hagdeild Samtaka atvinnulífsins og hefur
Halldór þegar hafið störf. Halldór starfaði áður sem
skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og staðgengill
ráðuneytisstjóra forsætisráðuneytisins um sjö ára skeið. Áður
starfaði hann m.a. sem skrifstofustjóri fjárlagaskrifstofu
fjármálaráðuneytisins og Fjárlaga- og hagsýslustofnunar í um
áratug.