Halda ber áfram að laga skattaumhverfið
Í ræðu sinni á aðalfundi Samtaka atvinnulífsins fjallaði Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra m.a. um þann mikla árangur sem náðst hefur í íslenskum efnahagsmálum á undanförnum áratug. Halldór fagnaði nýju riti SA, Áherslum atvinnulífsins. Sagðist hann geta tekið undir margt sem þar kemur fram og sagði þessa skýru framsetningu stefnumörkunar SA myndu gagnast stjórnvöldum í þeirri vinnu sem framundan er.
Frekari uppbygging stóriðju til alvarlegrar
skoðunar
Halldór sagði efnahagslegan stöðugleika algjört grundvallaratriði
fyrir áframhaldandi velmegun í landinu en lagði jafnframt áherslu á
mikilvægi þess að huga að frekari erlendri fjárfestingu hér á landi
til að halda uppi hagvexti og auka útflutningstekjur. Sagði hann
mikinn áhuga erlendra aðila fyrir frekari uppbyggingu stóriðju í
landinu og að þau mál væru til alvarlegrar skoðunar.
Halda ber áfram að laga skattaumhverfið
Þá tók hann undir það meginsjónarmið að halda bæri áfram að laga
skattaumhverfið með það í huga að styrkja samkeppnisstöðu
atvinnulífsins og bæta lífskjör almennings. Sagði hann t.d. gjöld á
borð við stimpilgjöld og ýmis vörugjöld í reynd leifar frá fyrri
tímum en tók einnig fram að efnahagslegt svigrúm til skattalækkana
væri takmarkað. Nauðsynlegt væri að forgangsraða og sagði Halldór
nauðsynlegt að gæta vel að alþjóðlegri skattasamkeppni og vera
tilbúin að bregðast við þeim breytingum sem þar kynnu að verða á
næstunni.
Einfaldara eftirlitskerfi
Þá fjallaði Halldór um
skýrslu SA um eftirlit með atvinnustarfsemi frá síðasta
aðalfundi samtakanna og sagði tillögur SA í veigamestum atriðum í
samræmi við stefnu ríkisstjórnarinnar. Sagðist Halldór taka heils
hugar undir mikilvægi þess að samræma veitingu skyldra leyfa, færa
hana á færri hendur, og að koma í veg fyrir að eftirlit sé ólíkt á
milli eftirlitsumdæma. Áfram bæri að vinna í þeim anda að færa
eftirlit til faggiltra skoðunarstofa.
Örorkubyrði lífeyrissjóða
Ennfremur fjallaði Halldór um sterka stöðu
lífeyriskerfisins hér á landi í samanburði við önnur lönd, en
jafnframt um vaxandi örorkubyrði sjóðanna. Sagði hann nauðsynlegt
að skoða hvernig örorkuréttur stofnast sem og mögulega endurhæfingu
og að þessi atriði yrðu væntanlega rædd á fundi sínum og
fjármálaráðherra með fulltrúum SA og ASÍ síðar í mánuðinum.
Vantar meira traust
Þá beindi Halldór sjónum sínum að átökum um yfirráð í fyrirtækjum
sem hann sagði ljóð á viðskiptalífinu. Sagði Halldór vanta meira
traust í samfélagið, jafnt í stjórnmálin sem viðskiptalífið. Á
báðum sviðum væri þörf á málefnalegu og sanngjörnu aðhaldi.
Loks fjallaði Halldór um nauðsyn þess að efla verulega þátt vísinda og rannsókna í landinu og um nauðsyn þess að bæta skilyrði lítilla og meðalstórra fyrirtækja.
Sjá ræðu Halldórs Ásgrímssonar á vef forsætisráðuneytisins.