Hagræði af tilfærslu fimmtudagsfrídaga
Talsverð umræða skapaðist síðasta vor um svokallaða "fimmtudagsfrídaga", og hvort ekki væri hægt að hagræða þessu fyrirkomulagi. Helst hefur verið rætt um sumardaginn fyrsta og uppstigningardag í þessu sambandi, enda þekkjast frídagar af þessu tilefni vart meðal þeirra þjóða sem við berum okkur saman við. Í ljósi vaxandi alþjóðavæðingar atvinnulífsins blasir við að sérviska á borð við frídaga á þessum dögum er hindrun í vegi viðskipta sem dregur úr lífskjörum þjóðarinnar allrar. Í nýlegri könnun Samtaka atvinnulífsins voru fyrirtæki spurð hvort þau teldu að tilfærsla einhverra fimmtudagsfrídaga vorsins yfir á heppilegri tíma myndi stuðla að auknu hagræði í rekstri fyrirtækisins.
82% telja hagræði af tilfærslu
fimmtudagsfrídaga
71% svöruðu spurningunni játandi, 16% neitandi en 13% tóku ekki
afstöðu. Ef einungis eru taldir þeir sem tóku afstöðu voru því 82%
fyrirtækja þeirrar skoðunar að tilfærsla fimmtudagsfrídaga myndi
stuðla að hagræði í rekstri, en 18% töldu svo ekki vera. Það er því
ljóst að meðal atvinnurekenda er mikill meirihluti fylgjandi
hagræðingu á þessu sviði.

Um könnunina
Könnunin var gerð í júní 2003. Spurningar voru sendar til 1.039
aðildarfyrirtækja SA og svör bárust frá 585, eða 56,3%.