Hækkun raungengis vanmetin
SA telja mat Seðlabankans á raungengi á mælikvarða launa vera vanmat. Þær samkeppnisaðstæður sem fyrirtækjum í alþjóðlegri samkeppni eru nú búnar eru orðnar það slæmar að óhjákvæmilegt er að þær leiði til verulegs samdráttar í útflutnings- og samkeppnisgreinum.
(Smellið á myndina)
Seðlabanki Íslands spáir því að raungengi krónunnar á mælikvarða launa, en það er mælikvarði sem endurspeglar samkeppnisskilyrði atvinnulífsins, muni hækka um 10,5% á þessu ári frá því síðasta. Að mati SA var samkeppnisstaða atvinnulífsins viðunandi á síðasta ári að jafnaði en versnaði mikið eftir því sem leið á árið og hefur sú þróun haldið áfram á þessu ári. Þær samkeppnisaðstæður sem fyrirtækjum í alþjóðlegri samkeppni eru nú búnar eru orðnar það slæmar að óhjákvæmilegt er að þær leiði til verulegs samdráttar í útflutnings- og samkeppnisgreinum. Þá mun hátt raungengi leiða til viðskiptahalla sem ekki fær staðist nema til skamms tíma.
Hækkun raungengis vanmetin
Samtök atvinnulífsins telja mat Seðlabankans á raungengi á
mælikvarða launa vera vanmat og í raun hafi samkeppnisstaða
atvinnulífsins versnað mun meira en fram kemur í meðfylgjandi
línuriti. Raungengi á mælikvarða launa byggist m.a. á
launabreytingum skv. launavísitölu Hagstofunnar fyrir almennan
markað en breytingar samkvæmt þeirri vísitölu vanmeta raunverulega
launaþróun að mati SA. Til stuðnings því sjónarmiði má nefna
að nýbirt gögn Kjararannsóknarnefndar um launabreytingar á almennum
vinnumarkaði sýna að laun hafi hækkað um 39% frá 1998 til 2002 en
launavísitala Hagstofunnar segir hækkun launa á almennum markaði á
sama tíma hafa verið 27%. Þessu til viðbótar hefur launatengdur
kostnaður aukist meira á Íslandi undanfarin ár en meðal þeirra
þjóða sem við berum okkur saman við. Þar ber hæst mótframlag
vinnuveitenda gegn viðbótar lífeyrissparnaði launamanna, sem talinn
er hafa hækkað launakostnað um 1,75%, og hækkun tryggingagjalds um
sl. áramót. Samkeppnisstaðan er því í raun mun verri í sögulegu
samhengi en línuritið gefur til kynna.
