Hægur efnahagsbati framundan í Evrópu
UNICE, Evrópusamtök atvinnulífsins, sendu í dag frá sér greiningu á og spá um þróun efnahagsstærða. Samtökin spá 0,9% hagvexti á evrusvæðinu á þessu ári og 2,1% á því næsta og þar af leiðandi mun efnahagsbati ekki eiga sér stað eins fljótt og búist var við í upphafi ársins. Samtökin vara við auknum álögum á fyrirtæki, einkum auknum gjöldum og launakostnaði, þar sem fyrirtækin berjast við að halda uppi arðsemi og búa flest við umframafkastagetu.
Óvissuþættir
Efnahagsumhverfið er óvisst í ljósi veikingar bandaríska
hagkerfisins, bágborins ástands á hlutabréfamörkuðum og pólitískrar
spennu í Mið-Austurlöndum. UNICE býst við hægum bata við
núverandi aðstæður þar sem verðbólga hefur aukist, kostnaðar- og
verðþensla hefur dregið úr hagnaði og fjárfestingum er slegið á
frest. Loks er atvinnuleysi mikið sem dregur úr sjálfstrausti
neytenda.
Vara við auknum launakostnaði
UNICE telur að við þessar aðstæður séu heilladrýgstu viðbrögðin að
lækka vinnuaflskostnað í því skyni að lágmarka aukningu
atvinnuleysis, sem þegar er mjög mikið. UNICE telja ekki mikið
svigrúm til þensluskapandi aðgerða af hálfu hins opinbera í ljósi
mikil halla í opinberum fjármálum. UNICE kynnti einnig aðgerðir sem
samtökin telja að ríkisstjórnir og fyrirtæki þurfi að grípa til í
glímunni við vaxandi erfiðleika í efnahagsmálum. Ríkisstjórnir í
Evrópuríkjunum verða að stuðla að samkeppnishæfni, aukinni
framleiðni, lækkandi vinnuaflskostnaði og bættri stöðu opinberra
fjármála.
Sjá greiningu UNICE á heimasíðu samtakanna.