Guðrún, Ásberg, Vilmundur, Þorsteinn, Adolf, Rannveig, Kristín, Eyjólfur, Anna, Grímur, Björgólfur og þú á aðalfundi SA 2013
Fjölbreyttur hópur stjórnenda mun á aðalfundi SA 2013 fjalla um
leiðir til að skapa fleiri og betri störf á Íslandi á næstu árum og
bæta lífskjör landsmanna. Aðalfundurinn verður haldinn
miðvikudaginn 6. mars á Hilton Reykjavík Nordica. Opin dagskrá
fundarins hefst kl. 14 og stendur skráning yfir á vef SA. Mikill
áhugi er á fundinum og því vissara að skrá sig strax til að tryggja
sér sæti.
Opin dagskrá hefst kl. 14 í aðalsal Nordica undir yfirskriftinni Samstöðuleiðin: Fleiri störf - betri störf.
Vilmundur Jósefsson, formaður Samtaka atvinnulífsins og Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi forsætisráðherra flytja erindi en í kjölfarið stíga eftirfarandi stjórnendur á stokk.
Guðrún Hafsteinsdóttir, markaðsstjóri Kjöríss, Ásberg Jónsson, framkvæmdastjóri Nordic Visitor, Adolf Guðmundsson, framkvæmdastjóri Gullbergs og formaður LÍÚ, Rannveig Rist, forstjóri Rio Tinto Alcan á Íslandi, Kristín Pétursdóttir, forstjóri Auðar Capital, Eyjólfur Árni Rafnsson, forstjóri Mannvits og Anna Björk Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri tæknisviðs Símans og stjórnarformaður Festu.
Í lok fundar
mun nýr formaður Samtaka atvinnulífsins flytja lokaorð og slíta
fundi.
Vilmundur Jósefsson, núverandi formaður Samtaka
atvinnulífsins hefur ákveðið að hætta sem formaður SA og stendur
kosning formanns nú yfir meðal félagsmanna SA. Björgólfur
Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, hefur gefið kost á
sér sem nýr formaður Samtaka atvinnulífsins.
Fundarstjóri er Grímur Sæmundsen, forstjóri Bláa Lónsins og varaformaður SA.
Samtök atvinnulífsins hvetja alla áhugasama um uppbyggingu atvinnulífsins og bætt lífskjör á Íslandi til að taka daginn frá og fjölmenna á Nordica.
Aðalfundi SA lýkur kl. 16.
